Bókað um leið og greitt er
Greidd færsla verður sjálfkrafa að sölureikningi í PayDay.is eða DK+, og endurgreiðsla að kreditnótu.
Bættu greiðslum við vöruna þína á mínútum. Borga sér um kortagreiðslur, kröfur í netbanka og bókhaldstenginguna.
á evrópskum neytendakortum.
+1.0% fyrir fyrirtækjakort og +2.5% utan Evrópu
Borga tekur við greiðslunni, heldur utan um áskriftina og bókar söluna í bókhaldskerfinu þínu.
Greidd færsla verður sjálfkrafa að sölureikningi í PayDay.is eða DK+, og endurgreiðsla að kreditnótu.
Föst gjöld, sæti og notkun á sama reikningi. Borga sér um tímabil, prufutíma og endurteknar tilraunir.
Kort, Apple Pay og Google Pay á öruggri greiðslusíðu Borga. Kortagögn snerta hvorki Borga né þinn server.
Settu upp @borga/node, búðu til payment session og sendu kaupanda á öruggu greiðslusíðuna.
npm i @borga/nodeexport BORGA_KEY=sk_test_...borga.paymentSessions.create({...})// Hosted checkout - einfaldasta greiðsluflæðið
import { Borga } from "@borga/node";
const borga = new Borga({ apiKey: process.env.BORGA_KEY });
const session = await borga.paymentSessions.create({
amount: 24180,
currency: "ISK",
customer: "cus_8f3aQ",
description: "Mánaðarnotkun - maí",
return_url: "https://merchant.is/takk",
cancel_url: "https://merchant.is/karfa",
});
return Response.redirect(session.url);Borga er áreiðanleg greiðslulausn sem auðvelt er að setja upp og skemmtilegt að vinna með.
Stutt svör við helstu ákvörðunum: verð, uppsetning, bókhald og öryggi.
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum, stofnar fyrirtækisaðgang og getur byrjað í þróunarham strax. Til að virkja raunumhverfi þarf aðili með prókúru að félaginu að senda inn umsókn um það í stjórnborðinu.
Nei. Grunnverðið er 2,1% + 10 kr. á hverja færslu. Engin föst mánaðargjöld, engin uppsetningargjöld og engin lágmarksvelta.
PayDay.is og DK+. Tengingin við DK+ er enn í vinnslu og við þróum hana áfram með fyrirtækjum sem nota DK+, svo endilega heyrðu í okkur ef þú ert eitt þeirra. Það sama gildir ef þú vilt að við styðjum annað bókhaldskerfi.
Já. Þú sendir notkun inn á mæla, til dæmis API-köll, sæti, gígabæti eða tíma. Borga safnar notkuninni á tímabilinu og rukkar réttu upphæðina sjálfkrafa.
Nei. Kortaupplýsingar eru slegnar inn á öruggri greiðslusíðu Borga og eru hvorki geymdar hjá Borga né hjá ykkur. Borga geymir aðeins tilvísun, síðustu fjóra tölustafi og stöðu greiðslunnar.
Já. Það er einfalt að byrja með greiðslusíðu og hvenær sem er hægt að skipta í innfellt greiðsluflæði sem lifir inni í vefnum þínum.