Um Borga

Greiðslur beint í bókhaldið

Borga er íslensk greiðslulausn sem tengist beint við bókhaldskerfið sem þú notar nú þegar. Þú tekur við greiðslum í vörunni þinni og hver sala skilar sér sjálfkrafa í bókhaldið.

Af hverju Borga

Íslensk fyrirtæki þurfa meira en kortagreiðslur. Þau þurfa kröfur í netbanka, áskriftir og löglegan sölureikning fyrir hverja sölu. Borga sameinar þetta í einu API sem forritarar geta tengt á mínútum.

Bókhaldið sér um sig sjálft

Borga býr ekki til eigin reikninga. Hver greiðsla er bókuð sem sölureikningur í bókhaldskerfinu sem þú notar nú þegar, PayDay.is eða DK+, og endurgreiðslur verða að kreditnótum. Þú heldur einu bókhaldi, ekki tveimur.

Peningarnir fara beint til þín

Kortagreiðslur eru færsluhirtar af Straumi greiðslumiðlun hf. og gerðar upp beint við söluaðila. Borga geymir aldrei fé söluaðila og stendur ekki á milli þín og uppgjörsins.

Hver stendur á bak við Borga

Borga er rekið af Greiða ehf. í Reykjavík, með stuðningi Aranja.