Þessir skilmálar gilda um þjónustu Greiða ehf. (hér eftir „Borga“) við söluaðila sem nýta greiðslu-, áskriftar- og bókhaldskerfi Borga. Með stofnun aðgangs eða notkun á þjónustunni samþykkir söluaðili þessa skilmála í einu og öllu.

Kortagreiðslur sem fara um Borga eru færsluhirtar af færsluhirði, sbr. skilgreiningu í 2. gr. Söluaðili gerir samning beint við færsluhirði um færsluhirðingu og uppgjör. Skilmálar þessir ná til þeirrar þjónustu sem Borga veitir söluaðila, þar með talið þeirrar þjónustu sem Borga veitir fyrir hönd færsluhirðis.

1

Inngangur og gildissvið

Borga er íslenskt greiðslu- og áskriftarkerfi rekið af Greiða ehf., kt. 510124-0490, Nóatún 17, 105 Reykjavík. Borga veitir söluaðilum aðgang að API, söluaðilavef, hýstri greiðslusíðu og innfelldu greiðsluflæði sem gerir þeim kleift að taka við greiðslum, halda utan um áskriftir og spegla greiðslur sjálfkrafa yfir í bókhaldskerfi.

Skilmálar þessir, ásamt verðskrá Borga, persónuverndarstefnu, vinnslusamningi og öðrum gildandi viðaukum, mynda samstarfssamning Borga og söluaðila. Sé ósamræmi milli skilmála Borga og samnings söluaðila við færsluhirði, ganga ákvæði færsluhirðis framar að því marki sem nauðsynlegt er til að uppfylla reglur kortasamtaka og skyldur Borga gagnvart færsluhirði.

Borga áskilur sér rétt til að synja umsókn um aðgang án skýringa.

2

Skilgreiningar

Söluaðili: Lögaðili eða einyrki, sbr. 3. gr., sem hefur stofnað aðgang að Borga og notar þjónustuna til að taka við greiðslum frá viðskiptavinum sínum.

Greiðandi: Sá einstaklingur eða lögaðili sem greiðir söluaðila í gegnum Borga.

Færsluhirðir: Það fjármálafyrirtæki sem Borga starfar með hverju sinni og annast færsluhirðingu og uppgjör kortagreiðslna sem fara um Borga. Núverandi færsluhirðir er Straumur greiðslumiðlun hf., kt. 620922-1020.

Prófunarumhverfi (test mode): Umhverfi þar sem allar færslur eru hermdar; engar raunverulegar greiðslur fara fram.

Raunumhverfi (live mode): Umhverfi þar sem greiðslur eru færsluhirtar af færsluhirði og uppgjör er greitt til söluaðila.

Kort: Greiðslukort gefið út í samræmi við reglur kortasamtaka, þar á meðal Visa, Mastercard og American Express.

Kortasamtök: Visa Inc., Visa Europe, Mastercard Worldwide, American Express og önnur kortasamtök sem færsluhirðir vinnur með hverju sinni.

Reglur kortasamtaka: Reglur, staðlar og leiðbeiningar sem kortasamtökin gefa út og eru aðgengilegar á vefsvæðum þeirra.

Endurkrafa (chargeback): Krafa korthafa eða kortaútgefanda um bakfærslu á áður framkvæmdri færslu samkvæmt reglum kortasamtaka.

Bókhaldsaðili: Þriðja aðila bókhaldskerfi (PayDay.is, DK+ eða annað) sem söluaðili tengir við Borga til útgáfu sölureikninga.

3

Stofnun aðgangs

Aðgangur að Borga er einungis veittur lögaðilum sem skráðir eru í fyrirtækjaskrá á Íslandi og einstaklingum með íslenska kennitölu sem stunda atvinnurekstur í eigin nafni (einyrkjum).

Notandi skráir sig inn með Kenni.is auðkenningu og getur stofnað aðgang söluaðila, annaðhvort fyrir lögaðila sem hann hefur heimild til að koma fram fyrir hönd eða fyrir sjálfan sig sem einyrki. Söluaðili ber ábyrgð á því að upplýsingar sem skráðar eru um hann séu réttar og að halda þeim uppfærðum.

Söluaðila er heimilt að bjóða öðrum notendum aðgang að aðgangi sínum með auðkennisnúmeri (kennitölu). Söluaðili ber ábyrgð á öllum aðgerðum sem framkvæmdar eru í gegnum aðgang hans, þar með talið af notendum sem hann hefur veitt aðgang.

Borga áskilur sér rétt til að krefjast frekari gagna um starfsemi söluaðila áður en aðgangur er virkjaður, þar á meðal vegna áreiðanleikakönnunar og laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018.

4

Prófunarumhverfi og raunumhverfi

Söluaðili fær aðgang að prófunarumhverfi strax við stofnun aðgangs. Í prófunarumhverfi eru allar færslur hermdar í gegnum prófunarkerfi færsluhirðis. Engin greiðsla berst raunverulega frá greiðanda til söluaðila í prófunarumhverfi og engin uppgjör fara fram.

Til að nota raunumhverfi þarf söluaðili að: (a) samþykkja skilmála þessa og verðskrá Borga; (b) staðfesta auðkenni sitt með þeim hætti sem Borga ákveður hverju sinni, en lögaðili staðfestir sig með Kenni.is fyrirtækjaauðkenningu sem sannreynir prókúru; og (c) gangast undir áreiðanleikakönnun færsluhirðis og gera samning við færsluhirði um færsluhirðingu.

Borga annast umsókn söluaðila hjá færsluhirði fyrir hönd söluaðila. Þegar færsluhirðir hefur samþykkt umsóknina kveikir Borga sjálfkrafa á raunumhverfi á aðgangi söluaðila.

Borga áskilur sér rétt til að synja eða afturkalla aðgang að raunumhverfi á grundvelli niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, áhættumats eða ákvörðunar færsluhirðis eða kortasamtaka.

5

Notkun API og söluaðilavefs

Borga lætur söluaðila í té API-lykla, fyrir prófunarumhverfi og raunumhverfi, til að framkvæma kallanir á API Borga. Lyklar skiptast í opinbera lykla, pk_ (e. publishable), til notkunar í vafra, og leynilykla, sk_ (e. secret), til notkunar á netþjóni. Söluaðili ber ábyrgð á öryggi leynilykla og skal aldrei birta þá í kóða sem keyrir í vafra eða öðru opinberu umhverfi.

Glati söluaðili lykli, eða fái grun um að lykill hafi komist í hendur óviðkomandi, skal hann tafarlaust afturkalla lykilinn í gegnum söluaðilavefinn og tilkynna Borga um atvikið. Söluaðili ber ábyrgð á öllum greiðslum sem framkvæmdar eru með lyklum hans þar til þeir eru afturkallaðir.

Söluaðila ber að senda Idempotency-Key haus með öllum POST-beiðnum sem stofna til færslu, til að koma í veg fyrir tvígreiðslur við endurtekningar. Borga er ekki ábyrgur fyrir tjóni sem hlýst af því að söluaðili sendi inn beiðnir án Idempotency-Key.

Söluaðili skuldbindur sig til að misnota ekki API Borga, til dæmis með óeðlilega tíðum köllum, óheimilum aðgangsbeiðnum að gögnum annarra söluaðila eða tilraunum til að komast hjá öryggisráðstöfunum. Borga áskilur sér rétt til að takmarka tíðni kalla (rate limiting) og loka tímabundið á aðgang sem brýtur gegn þessari grein.

6

Greiðsluvinnsla og hlutverk færsluhirðis

Borga er API- og þjónustulagið sem söluaðili vinnur með. Færsluhirðing kortagreiðslna fer fram hjá færsluhirði, sem starfar með tilskilin leyfi og undir eftirliti lögbærra yfirvalda. Söluaðili gerir samning beint við færsluhirði um færsluhirðingu, uppgjör og meðhöndlun endurkrafna.

Borga er skráður samstarfsaðili færsluhirðis og veitir tiltekna þjónustu fyrir hans hönd, þar með talið móttöku og miðlun umsókna söluaðila, hýsta greiðslusíðu og innfellt greiðsluflæði, sannvottun korthafa með 3D Secure og umsýslu vistaðra greiðslukorta vegna endurtekinna greiðslna. Í þeirri þjónustu fer Borga eftir samningi sínum við færsluhirði og reglum kortasamtaka, og söluaðili skuldbindur sig til að fara að þeim ákvæðum sem á hann eru lögð vegna hennar. Samþykki færsluhirðis er forsenda raunumhverfis.

Uppgjör vegna kortagreiðslna fer beint frá færsluhirði inn á þann ráðstöfunarreikning sem söluaðili hefur skráð. Borga heldur ekki á fjármunum söluaðila á neinum tímapunkti.

Söluaðili viðurkennir og samþykkir að færsluhirðir og kortasamtökin geta krafist tafarlausrar lokunar á tilteknum tegundum viðskipta, ákveðnum söluaðilum eða allri starfsemi söluaðila ef þau telja það nauðsynlegt vegna áhættu, brota eða krafna lögbærra yfirvalda. Borga er skylt að framfylgja slíkum kröfum gagnvart söluaðila án sérstaks fyrirvara.

Borga er heimilt að skipta um færsluhirði. Borga tilkynnir söluaðila um fyrirhuguð skipti með hæfilegum fyrirvara. Söluaðili heimilar Borga að sækja um fyrir hans hönd hjá nýjum færsluhirði og miðla þeim upplýsingum um söluaðila og færslur hans sem nauðsynlegar eru til að flytja þjónustuna. Skilmálar þessir gilda óbreyttir eftir skiptin og vísanir til færsluhirðis eiga þá við um nýjan færsluhirði. Vilji söluaðili ekki gera samning við nýjan færsluhirði getur hann sagt samstarfssamningnum upp án fyrirvara áður en skiptin taka gildi.

7

Móttaka korta og jafnræði

Söluaðila ber að taka við öllum gildum kortum af þeirri tegund sem skráð er í aðgangi hans og má ekki hafna móttöku á grundvelli þess hver korthafi eða útgefandi kortsins er, nema lög eða reglur kortasamtaka kveði á um slíkt.

Söluaðila er óheimilt að hækka verð á vöru eða þjónustu þegar greitt er með korti, krefjast lágmarksfjárhæðar í viðskiptum sem greidd eru með korti, eða setja önnur óréttmæt skilyrði fyrir móttöku korts.

Söluaðila er óheimilt að krefja korthafa um afsal á rétti til að mótmæla færslu eða setja inn í skilmála sína skyldur sem ganga gegn reglum kortasamtaka.

Söluaðili skal eingöngu krefja færsluhirði um greiðslur vegna færslna sem stofnað er til með kortum í samræmi við gildandi reglur. Söluaðila er óheimilt að krefja korthafa beint um greiðslu nema færsluhirðir hafi framselt söluaðila innheimturéttinn með bakfærslu eða synjun.

8

Bönnuð viðskipti

Söluaðila er óheimilt að nota Borga eða taka við kortum sem greiðslu í eftirfarandi tilvikum:

(a) fyrir vöru eða þjónustu þriðja aðila, þ.e. nokkurs annars en söluaðila sjálfs; (b) fyrir starfsemi sem brýtur gegn samstarfssamningi þessum, gildandi lögum eða reglum kortasamtaka; (c) fyrir kaup sem eru liður í peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka; (d) fyrir sviksamleg eða óréttmæt viðskipti; (e) þegar færsla hefur áður verið mótmælt eða heimild fyrir henni synjað; (f) ef kort er útrunnið eða ógilt; eða (g) annarra tilvika sem tilgreind eru í gildandi viðskiptaskilmálum færsluhirðis á hverjum tíma.

Tilteknar atvinnugreinar krefjast sérstakrar skráningar hjá kortasamtökunum (t.d. sala á tóbaksvörum, vape-vökva, lyfjum, áfengi, fjárhættuspilum og fullorðinsefni). Söluaðila ber að upplýsa Borga áður en hann hefur slíka starfsemi og bera ábyrgð á að uppfylla allar skráningarkröfur. Borga áskilur sér rétt til að innheimta kostnað og gjöld sem af slíkri skráningu hljótast.

Söluaðili ábyrgist að allar kortafærslur sem sendar eru til Borga endurspegli sölu á vörum eða þjónustu í reglulegum rekstri söluaðila í samræmi við lýsingu starfsemi í aðganginum.

9

Netviðskipti og 3D Secure

Allar kortafærslur í gegnum Borga teljast netviðskipti og lúta sérstökum reglum. Söluaðili skal birta á vefsíðu sinni eða í smáforriti, með aðgengilegum og greinargóðum hætti, eftirfarandi upplýsingar áður en greitt er:

(a) upplýsingar um söluaðila: nafn fyrirtækis eða einyrkja, kennitölu, virðisaukaskattsnúmer ef við á, heimilisfang, símanúmer og netfang; (b) lýsingu á vöru eða þjónustu og verð að meðtöldum opinberum gjöldum, og við sölu á kremum eða vökvum til útvortis notkunar magn innihalds og innihaldslýsingu; (c) viðskiptaskilmála söluaðila, sem skulu að lágmarki tilgreina nafn fyrirtækis, land og bæ þar sem söluaðili hefur starfsstöð, hvaða lög gilda um viðskiptin, afbókunar- og skilarétt, reglur um endurgreiðslur og uppsögn áskrifta og, eftir því sem við á, afhendingarskilmála, þ.e. afhendingarmáta, afhendingartíma, flutningsaðila og sendingarkostnað; (d) persónuverndarstefnu, sbr. 15. gr., og upplýsingar um hvernig farið er með greiðslukortaupplýsingar; og (e) merki kortasamtaka þar sem greiðsluleiðir eru tilgreindar.

Í greiðsluferli eða körfu skal vera reitur þar sem greiðandi hakar við til staðfestingar á því að hann hafi lesið og samþykkt viðskiptaskilmála söluaðila. Ekki skal vera hægt að halda áfram að greiðslu fyrr en hakað hefur verið í reitinn.

Á greiðslusíðu skulu koma fram merki kortasamtaka, mynt færslunnar, það heiti sem söluaðili notar í viðskiptum, heimilisfang söluaðila og netfang hans og símanúmer. Noti söluaðili hýsta greiðslusíðu Borga ber hann ábyrgð á því að þær upplýsingar sem hann skráir í aðgang sinn og birtast á síðunni séu réttar og fullnægjandi.

Afbókunar- og endurgreiðsluskilmálar söluaðila skulu vera sýnilegir á íslensku og ensku á sömu síðu og greiðslan fer fram, áður en greiðsla er staðfest. Það telst ekki fullnægjandi að vísa til skilmála sem birtir eru annars staðar á vefnum eða í sprettiglugga.

Hýst greiðslusíða Borga og innfellt greiðsluflæði krefjast sannvottunar með 3D Secure (3DS2) þegar útgefandi kortsins styður slíkt. Færslur þar sem söluaðili sleppir 3D Secure með höndum, eða fer fram á undanþágu sem ekki á við, eru alfarið á ábyrgð söluaðila ef til endurkröfu kemur vegna sviksamlegrar notkunar.

Söluaðila er óheimilt að krefja korthafa um kortaupplýsingar í tölvupósti, spjallskilaboðum eða öðrum óöruggum samskiptaleiðum.

Söluaðili skal birta korthafa kvittun þegar greiðsla hefur verið samþykkt og senda honum afrit hennar með rafrænum hætti sé þess óskað.

10

Endurgreiðslur

Söluaðila er einungis heimilt að framkvæma endurgreiðslu með rafrænni bakfærslu á sama kortareikning og var notaður í upphaflegri sölu. Söluaðila er óheimilt að endurgreiða kortafærslu með reiðufé, bankamillifærslu eða öðrum hætti.

Endurgreiðsla má aldrei nema hærri fjárhæð en upphafleg færsla. Söluaðili ber ábyrgð á gengismun sem kann að myndast við endurgreiðslu á erlent kort og öðrum kostnaði sem fellur til.

Söluaðili á ekki rétt á endurgreiðslu þeirra þjónustugjalda sem hann greiddi vegna upphaflegu færslunnar, jafnvel þótt færslan sé endurgreidd að fullu. Engin þjónustugjöld Borga leggjast þó á endurgreiðsluna sjálfa, en færsluhirðir kann að innheimta gjöld vegna hennar samkvæmt verðskrá sinni.

Endurgreiðslur skulu framkvæmdar í gegnum API Borga eða söluaðilavef.

11

Endurkröfur

Endurkröfur (e. chargebacks) eru meðhöndlaðar af færsluhirði samkvæmt samningi söluaðila við færsluhirði og reglum viðeigandi kortasamtaka. Réttur korthafa til endurkröfu kann að vera ríkari samkvæmt reglum kortasamtaka en samkvæmt almennum lögum.

Allar endurkröfur eru á ábyrgð söluaðila. Færsluhirðir innheimtir gjöld vegna endurkrafna samkvæmt verðskrá sinni. Um frádrátt endurkröfu frá uppgjöri og umreikning í aðra mynt fer samkvæmt samningi söluaðila við færsluhirði.

Söluaðili mótmælir endurkröfu og leggur fram gögn til stuðnings mótmælum sínum gagnvart færsluhirði, innan þeirra fresta og með þeim hætti sem færsluhirðir setur. Borga lætur söluaðila í té upplýsingar um færsluna sem Borga býr yfir, sé þess óskað.

Söluaðili skuldbindur sig til að geyma kvittanir, samskipti við greiðanda og önnur gögn sem styðja lögmæti færslu í að minnsta kosti eitt (1) ár frá dagsetningu færslunnar.

12

Áskriftir og notkunarmæling

Borga býður söluaðila upp á áskriftarvél sem heldur utan um endurteknar greiðslur, prufutíma, hlutfallsreikning, endurtilraunir á misheppnuðum greiðslum og notkunarmælingu (usage events).

Söluaðila ber að afla skýrs samþykkis frá greiðanda fyrir endurteknum greiðslum (MIT-greiðslum) áður en fyrsta áskriftarfærsla er framkvæmd. Slíkt samþykki skal vera sannanlegt og söluaðili skal geyma staðfestingu þess í að minnsta kosti eitt (1) ár eftir lok áskriftar.

Þegar greiðandi segir upp áskrift, eða krefst þess að söluaðili hætti að rukka kort hans, ber söluaðila að stöðva allar frekari greiðslur þegar í stað. Heldur söluaðili áfram að rukka kortið eftir uppsögn er færsluhirði heimilt að bakfæra slíkar færslur og innheimta kostnað samkvæmt verðskrá sinni.

Borga reiknar endurnýjunargreiðslur áskrifta út frá þeim verðum og notkunargögnum sem söluaðili skráir. Söluaðili ber ábyrgð á réttmæti notkunargagna (usage events) og þeim verðum sem skráð eru.

13

Bókhaldstengingar

Söluaðila er heimilt að tengja Borga við bókhaldskerfi þriðja aðila, svo sem PayDay.is eða DK+, til að spegla greiðslur sjálfkrafa sem sölureikninga. Borga geymir auðkenni og aðgangslykla (e. tokens) frá bókhaldskerfi söluaðila dulkóðuð.

Bókhaldsaðili er sjálfstæður aðili og lögleg útgáfa sölureiknings á sér stað hjá honum. Borga er ekki ábyrgt fyrir réttleika eða lögmæti reikninga sem bókhaldskerfi söluaðila gefur út, né fyrir samskiptum söluaðila við bókhaldsaðilann.

Bili tenging við bókhaldskerfi, eða ef bókhaldsaðili fellir niður þjónustu, stöðvast greiðsluvinnsla Borga ekki. Söluaðili getur þá keyrt færslu yfir í bókhaldið síðar eða útbúið reikning handvirkt í kerfi bókhaldsaðila.

Söluaðila ber að tryggja að upplýsingar sem hann skráir í Borga (vörulínur, verð, vsk-flokkar, kennitölur greiðenda þar sem við á) séu í samræmi við gildandi lög um bókhald og virðisaukaskatt.

14

Verðskrá og uppgjör

Söluaðili greiðir Borga þjónustugjöld samkvæmt gildandi verðskrá sem birt er á borga.is. Verðskrá tilgreinir færslugjöld og önnur gjöld sem kunna að falla til. Verðskrá er hluti af samstarfssamningi þessum.

Þjónustugjöld Borga eru reiknuð á hverja heppnaða færslu. Söluaðili samþykkir að færsluhirðir dragi þjónustugjöld Borga frá uppgjöri til söluaðila og greiði þau Borga. Engin þjónustugjöld eru endurgreidd vegna færslna sem söluaðili endurgreiðir korthafa.

Færsluhirðir innheimtir jafnframt eigin gjöld, til dæmis vegna endurkrafna, samkvæmt samningi sínum við söluaðila og verðskrá sinni. Slík gjöld eru ekki hluti af verðskrá Borga.

Uppgjör fer beint frá færsluhirði inn á ráðstöfunarreikning söluaðila samkvæmt samningi söluaðila við færsluhirði. Borga heldur ekki á fjármunum söluaðila á neinum tímapunkti.

Verði Borga fyrir kostnaði eða sektum vegna brota söluaðila gegn reglum kortasamtaka eða samningi þessum, skal söluaðili endurgreiða Borga slíkan kostnað. Um kostnað sem fellur á færsluhirði fer samkvæmt samningi söluaðila við færsluhirði.

Verði vanskil á greiðslum söluaðila til Borga greiðir söluaðili dráttarvexti samkvæmt vaxtalögum nr. 38/2001 ásamt innheimtukostnaði.

15

Persónuvernd og PCI DSS

Vinnsla persónuupplýsinga í tengslum við þjónustuna fer fram í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR). Persónuverndarstefna Borga, sem er hluti af samstarfssamningi þessum, lýsir nánar hvernig Borga vinnur með persónuupplýsingar. Þegar Borga vinnur persónuupplýsingar fyrir hönd söluaðila, til dæmis um greiðendur, fer um vinnsluna samkvæmt vinnslusamningi Borga sem birtur er á borga.is/vinnslusamningur og er hluti af samstarfssamningi þessum.

Söluaðila ber að birta sína eigin persónuverndarstefnu á vefsíðu sinni, sem uppfyllir kröfur laga nr. 90/2018 og reglugerðar (ESB) 2016/679, veita greiðendum viðeigandi fræðslu um vinnslu persónuupplýsinga og uppfylla réttindi skráðra einstaklinga samkvæmt persónuverndarlöggjöf.

Söluaðili skal aldrei geyma viðkvæmar kortaupplýsingar (CVV, CVC, CID, PIN) og skal tryggja að geymsla, vinnsla og eyðing kortaupplýsinga uppfylli kröfur PCI DSS staðalsins. Hýst greiðslusíða Borga og innfellt greiðsluflæði eru hönnuð þannig að kortaupplýsingar eru slegnar inn í öruggan glugga (e. iframe) frá færsluhirði. Söluaðili meðhöndlar því ekki kortagögn beint og PCI-umfang söluaðila helst í lágmarki (SAQ A).

Söluaðili skuldbindur sig til að tilkynna Borga um öryggisrof eða grun um öryggisrof innan 24 klukkustunda frá því að atvik kemur upp. Tilkynning skal send á netfangið oryggi@borga.is og innihalda lýsingu á eðli atviks, fjölda skráðra einstaklinga sem það varðar og þeim ráðstöfunum sem söluaðili hefur gripið til.

16

Trúnaður og upplýsingaskylda

Söluaðili skal í hvívetna gæta trúnaðar gagnvart greiðanda vegna viðskipta þeirra á milli og er ábyrgur fyrir öryggi upplýsinga sem miðlað er í tengslum við greiðsluna.

Söluaðili skal án tafar tilkynna Borga skriflega um eftirfarandi: meiriháttar breytingar á starfsemi, eignarhaldi, framkvæmdastjórn, prókúruumboðum eða aðaltengilið; breytingar á netfangi söluaðila; tap, þjófnað eða misnotkun á aðgangslyklum; öryggisrof eða grun um slíkt; og aðrar aðstæður sem geta hindrað efndir samstarfssamnings þessa.

Borga áskilur sér rétt til að krefjast staðfestingar á framangreindum upplýsingum með framlagningu viðurkenndra gagna, t.d. tilkynninga til fyrirtækjaskrár eða ársreikninga, og kann að taka allt að sjö (7) virka daga að uppfæra upplýsingar í kerfum sínum eftir að tilkynning berst.

Söluaðili heimilar Borga að miðla upplýsingum um sig, og um færslur sem fram fara um Borga, til færsluhirðis, kortasamtaka, samstarfsaðila og lögbærra yfirvalda þegar slíkt er nauðsynlegt til að uppfylla skyldur Borga eða færsluhirðis samkvæmt lögum, reglum kortasamtaka eða samningi Borga við færsluhirði. Söluaðili heimilar jafnframt færsluhirði að miðla til Borga upplýsingum um færslur, uppgjör og endurkröfur söluaðila sem Borga þarf til að veita þjónustuna.

17

Áreiðanleikakönnun

Borga áskilur sér rétt til að framkvæma áreiðanleikakönnun á söluaðila og, eftir því sem við á, raunverulegum eigendum, stjórnendum og prókúruhöfum hans, í samræmi við áhættustefnu Borga og lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, og reglur kortasamtaka.

Slík könnun getur falið í sér athugun á fjárhags- og rekstrarupplýsingum, athugun í fyrirtækjaskrá, fjárhagsupplýsingastofum, fjölmiðlavakt og opnum miðlum, og samvinnu við færsluhirði, banka eða aðra sérfróða utanaðkomandi aðila sem bundnir eru trúnaði.

Söluaðili skal án tafar afhenda Borga umbeðin gögn vegna áreiðanleikakönnunar, eða veita Borga heimild til að afla gagnanna frá þriðja aðila.

Sé niðurstaða áreiðanleikakönnunar ófullnægjandi að mati Borga eða færsluhirðis, getur Borga synjað aðgangi að raunumhverfi, krafist frekari gagna, krafist trygginga (t.d. veðs eða bankaábyrgðar) eða sagt samstarfssamningnum upp.

18

Frestun uppgjörs og lokun aðgangs

Færsluhirðir getur haldið eftir uppgjöri til söluaðila, í heild eða að hluta, samkvæmt samningi söluaðila við færsluhirði. Borga er heimilt að óska eftir því við færsluhirði að uppgjöri verði frestað ef einhverju eftirfarandi atvika er fyrir að fara: (a) grunur er um sviksamlegar eða óheimilar færslur; (b) söluaðili sinnir ekki upplýsingaskyldu eða beiðnum um gögn; (c) endurkröfur eða aðrar aðgerðir leiða til endurgreiðsluáhættu; (d) rekstrarumhverfi söluaðila tekur verulegum breytingum sem auka áhættu; (e) söluaðili er í vanskilum með gjöld; (f) söluaðili á við fjárhagslega erfiðleika að stríða; (g) kortasamtök krefjast frestunar; eða (h) lög eða fyrirmæli yfirvalda heimila ekki uppgjör.

Þegar þær aðstæður sem rökstuddu beiðni Borga um frestun eru ekki lengur fyrir hendi, skal Borga tilkynna færsluhirði það án tafar. Borga skal tilkynna söluaðila um beiðni um frestun uppgjörs og ástæður hennar, nema lög eða fyrirmæli yfirvalda banni slíkt.

Borga er heimilt að loka tímabundið eða varanlega á aðgang söluaðila að API, söluaðilavef og raunumhverfi ef söluaðili brýtur gegn samstarfssamningi þessum, ef færsluhirðir eða kortasamtök krefjast þess, eða ef Borga telur að áframhaldandi þjónusta stofni viðskiptavild eða orðspori Borga eða færsluhirðis í hættu.

19

Skaðleysi og ábyrgðartakmörkun

Söluaðili skal halda Borga, færsluhirði, kortasamtökum og samstarfsaðilum þeirra skaðlausum af hvers konar tjóni, kröfum, sektum, refsingum og kostnaði sem þessir aðilar kunna að verða fyrir vegna eða í tengslum við aðgerðir, aðgerðarleysi, vanrækslu eða brot söluaðila á samstarfssamningi þessum, lögum eða reglum kortasamtaka.

Borga ber, undir engum kringumstæðum, ábyrgð gagnvart söluaðila á: missi hagnaðar, rekstrartjóni, tapi á áætluðum sparnaði, skerðingu á viðskiptavild, refsikenndum skaðabótum eða öðru óbeinu eða afleiddu tjóni.

Borga ber ekki ábyrgð á tjóni sem leiðir af: (a) ólögmætum eða sviksamlegum færslum sem söluaðili samþykkti; (b) bilun í hugbúnaði söluaðila eða þriðja aðila; (c) óviðráðanlegum atvikum, þar með talið rafmagnstruflunum, netárásum og bilunum í netkerfi; (d) ákvörðunum færsluhirðis eða kortasamtaka sem leiða til frestunar eða lokunar; eða (e) ágreiningi milli söluaðila og greiðanda um gæði vöru eða þjónustu.

Heildarábyrgð Borga gagnvart söluaðila vegna alls tjóns sem rekja má til samstarfssamnings þessa skal aldrei nema hærri fjárhæð en heildarþjónustugjöldum sem söluaðili hefur greitt Borga á síðustu tólf (12) mánuðum fyrir tjónsatburð. Að því marki sem þessi ábyrgðartakmörkun er talin ganga lengra en lög heimila skulu skilmálarnir gilda að því marki sem lög leyfa.

20

Breytingar á skilmálum

Borga áskilur sér rétt til að gera breytingar á þessum skilmálum, verðskrá og öðrum viðaukum. Breytingar eru tilkynntar söluaðila með rafrænum hætti á uppgefið netfang og birtar á borga.is áður en þær taka gildi.

Breytingar taka gildi tveimur (2) vikum eftir að tilkynning er send, hafi söluaðili ekki sagt upp samstarfssamningnum áður en breytingarnar taka gildi. Áframhaldandi notkun á þjónustunni eftir gildistöku telst samþykki á breyttum skilmálum.

Þrátt fyrir framangreint er Borga heimilt að gera breytingar með skemmri fyrirvara, eða án fyrirvara, ef breytingarnar eru nauðsynlegar samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirvalda, kröfum kortasamtaka eða færsluhirðis, eða til að bregðast við öryggisatvikum.

21

Gildistími og uppsögn

Samstarfssamningurinn tekur gildi við stofnun aðgangs eða þegar söluaðili byrjar að taka við greiðslum í gegnum Borga, hvort sem fyrr verður, og gildir uns honum er sagt upp.

Hvor aðili um sig getur sagt samstarfssamningnum upp skriflega með eins (1) mánaðar fyrirvara frá og með næstu mánaðamótum. Allar samningsskyldur haldast á uppsagnarfresti.

Þrátt fyrir framangreint er Borga heimilt að rifta samstarfssamningnum án fyrirvara ef: (a) færsluhirðir eða kortasamtök krefjast þess; (b) lög eða fyrirmæli yfirvalda gera Borga skylt að hætta þjónustu við söluaðila; (c) söluaðili brýtur verulega gegn skilmálum, lögum eða reglum kortasamtaka; (d) háttsemi söluaðila er talin sviksamleg eða óréttmæt; (e) niðurstaða áreiðanleikakönnunar er ófullnægjandi; (f) árangurslaust fjárnám er gert hjá söluaðila eða krafa kemur fram um gjaldþrotaskipti á búi hans; (g) söluaðili hefur ekki haft veltu í tólf (12) mánuði; eða (h) samningi söluaðila við færsluhirði lýkur.

Uppsögn eða riftun samstarfssamnings þessa hefur ekki sjálfkrafa áhrif á samning söluaðila við færsluhirði. Um uppgjör, endurkröfur og tryggingar eftir lok samnings fer samkvæmt samningi söluaðila við færsluhirði.

22

Lög og varnarþing

Um skilmála þessa og samstarfssamning aðila gilda íslensk lög.

Rísi mál vegna samstarfssamningsins eða skilmála þessara skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Söluaðila er heimilt að skjóta ágreiningi um þjónustu Borga til Borga á netfangið hallo@borga.is. Um ágreining vegna þjónustu færsluhirðis fer samkvæmt samningi söluaðila við færsluhirði.